9 ára dama og 3ja ára prins!!!Ţórunn Ágústa

Góðan daginn.
Nú eru foreldrarnir búnir að skila af sér verkefninu. Börnin eru bæði búin að eiga afmæli. Björg átti afmæli þann 1. maí og Sveinbjörn Hugi átti svo afmæli í gær þann 6. júní. Hann fékk nokkra pakka afhenta í gær og hafði þar áður fengið afhentar 2 gjafir hjólbörur og hjól.Laughing
Amma og afi frá Selfossi eru komin og farin. Þau komu 3 maí og voru til 5 júní. Mikil hjálp að fá þau. Hefðu bara mátt vera lengur. Prinsinn er komin með hita núna og foreldrarnir að fara í próf á þriðjudag.Surprised
En setti inn nokkrar myndir af afmælisbörnunum okkar. setjum inn frekari fréttir síðar.

Fariđ ađ síga á seinni hlutann á 8. önn.Ţórunn Ágústa

Já góðan dag.
Við erum öll á lífi.
Sveinbjörn dafnar vel hjá dagmömmunni. Hann er kominn með leikskólapláss og á að byrja 1. ágúst. Hentar rosalega vel fyrir okkur. Hann hefði annars átt að byrja 1. júní. Ákkúrat á prófa tíma. En gott að þetta reddaðist, það var af því þeir áttu ekki laus pláss 1. júní. Maður fær ekkert að ákveða þetta neitt sjálfur.
Björgu Jónínu gengur rosalega vel í skólanum. Á öllum foreldrafundum er hún lofsömuð af kennurunum. Hún er góður vinur krakkana og passar stundum upp á að allir hafi einhvern að leika með í frímínútum. Í hverri viku er gefin viðurkenning til þeirra krakka í bekknum sem hafa, lært heima, verið stillt og verið "góðir vinir". Þetta gengur Björg mjög mikið upp í. Hún er á taugum hvort hún gleymi að læra heima. Svo kallar hún stundum upp þegar hún á að fara að sofa. Ég held ég hafi gleymt að læra en það hefur nú held ég bara 1 sinni gerst frá því hún byrjaði í skólanum. Hún hefur alltaf komið heim með viðurkenningu síðan það byrjaði í 7 ára (1.klasse) bekk og er áfram dugleg núna í 8 ára bekk (2. klasse).
Ég og Gunni erum saman í grúbbu núna og ótrúlegt en satt er alveg hægt að vinna með honum. Hann er svona skítsæmilegur stundum Laughing. Við erum að drukkna í lærdóminum en sem betur fer er tengdó að koma um helgina og hjálpa okkur. Þá kemur amman til með að sækja Sveinbjörn Huga og Björg mun hjóla heim til þeirra. Þau ætla svo að elda mat fyrir okkur á kvöldin og svo kemur annað okkar eða bæði til með að fara heim og koma börnunum í rúmið.
En annars er bakið búið að vera að plaga mig og búið að taka frekar mikið á. Þetta er hrikalega þreytandi en eitt af því sem maður verður að taka á líka. En ég er allavega verkjaminni í augnablikinu. Eða færri dagar sem ég þarf að taka verkjalyf til að geta setið áfram.
En við skilum 27. maí mikið verð ég fegin að klára þessa önn þetta verður bara erfiðara og erfiðara með hverju árinu að eiga börn og vera í skóla. Við reynum að nýta hvert tækifæri að gera eitthvað með krökkunum en þau eru því miður fá. Samt held ég að við náum 1 sinni í mánuði minnst.
En svo eru prófin hjá okkur 8 júní og seinna prófið, vörn á verkefninu, verður einhverntímann í seinustu 2 vikum júnímánaðar.
Þangað til næst. (ef það er einhver sem kíkir hérna ennþá)
Kveðja úr Álaborginni

Skólinn byrjađur á áttundu önn.Gunni Run

Þá erum við mætt aftur í skólann eftir frábært tveggja vikna frí. Prófin í janúar gengu ljómandi vel. Ekkert fall og bara full ferð áfram.

Núna erum við loksins laus við glussaverkefni og förum að eiga við rafmagnskerfi. Dáldið meira spennandi.

Eini gallinn við þetta allt er að nú sit ég uppi með kellinguna 24 tíma á sólahring. Hún er búin að færa sig yfir í mína grúppu. Enda laaaaaaang besta grúppan á EMSD!!! Að vísu fór skýrslan hjá mér ekkert rosalega vel núna fyrir jólin. Við lentum í tómu tjóni og unnum stærstan hluta af skýrslunni á tveimur vikum, og sú vinna var líka úti á túni. Þannig að afraksturinn var frekar rýr á sjöundu önn.

EN það stendu allt til bóta núna. Við erum að velja okkur verkefni til að vinna á þessari önn. Það eru nokkur sem við getum valið úr. Til dæmis rafdrifinn gokart bíll, rafmagnsbíll og svo erum við dáldið að skoða að taka rafmagnshjólastól og breyta honum í segway. Það hljómar mjög spennandi og er held ég mitt fyrsta val. En ég verð bara að bíða og vona að ég nái að sannfæra grúppuna um að þetta sé eina rétta verkefnið.

Þar sem grúppan er núna orðin sex manna eftir að Þórunn kom inn í hana og þar með stærsta grúppan fengum við að velja grúppuherbergi fyrst. Þar með erum við komin með einka skrifstofu í staðinn fyrir að vera með annari grúppu í herbergi eins og á síðustu önn. Sem er mjög gott.

En enn og aftur lofa ég að vera duglegari að skrifa fréttir þannig að ég læt þetta duga í bili.

Heyrumst
Gunni.

Björg Jónína heppnaŢórunn Ágústa

Jæja nú er prinsessan á bænum búin að vera heldur betur heppin.
Siðasta sumar fórum við með hana til ofnæmislæknisins og sýndi hún í fyrsta skipti að það var lækkun í eggjaofnæminu niður fyrir viðmiðunarmörk. Allavega nóg til að ofnæmislæknirinn hennar stakk upp á að hún myndi fara í test á sjúkrahúsinu. Þar yrði henni gefið egg til að sjá hvort líkami hennar myndi bregðast við. Hún var svo heppin að Guðný móðursystir hennar hafði möguleika á því að fara með henni á mánudaginn þar sem Benni, sonur hennar, var að fara líka til læknis í Reykjavík. En þau mættu galvösk á barnaspítalann kl. 8 um morguninn og svo var tekið til við að prufa. Fyrst gert húðpróf sem kom eins út og um sumarið og svo fékk hún ristað brauð með eggi á. Henni fannst nú ekki þessi egg neitt merkileg, þau brögðuðust nú bara eins og gúmmí (eins og í gúmmíböngsum). Svo fékk hún 3svar sinnum súkkulaði búðing sem hrá egg voru hrærð í. Þegar þriðji skammturinn kom fannst henni nú nóg komið enda alltaf verið matgrönn en gerði það fyrir Guðnýju frænku að klára. Amma Guðný og Gunni Freyr komu svo og tóku við að bíða hjá Björgu á barnaspítalanum svo Guðný frænka og Benni litli gætu skroppið frá. En Björg var laus af spítalanum um hálf eitt. Svo þar sem ekkert hefur komið fram síðar er búið að staðfesta að Björg er EKKI lengur með ofnæmi fyrir eggjum......
Laughing
Bara snilld.
Með stressandi kveðjum frá hamingjusömum foreldrum sem eru að fara að skila eftir slétta viku.

Í skólanum í skólanum....Ţórunn Ágústa

Já ætli sé ekki gott að henda inn smá línu. Ég er líka á lífi en búið að vera mikil pressa undanfarið. Mikið að gera í skólanum og verður fyrst búin pressan, í bili, 18 desember. Vá hvað manni hlakkar til.
En mér gengur alveg ágætlega að ná skilningi á námsefninu finnst ég ekki hafa skrifað nóg í skýrslunni en veit ekki hvað þeim finnst um það strákunum. Vona að þetta verði í lagi og þeir nokkuð sáttir við mig.
En annars er ég sem betur fer með stjórn á þessu og væri nokkuð sama með að fá ekki grúbbu aftur. Því ég veit mikið meira núna eftir þessa önn en áður. En það væri samt fúlt.
Krakkarnir eru hjá mömmu og virðast hafa það mjög gott. Sveinbjörn er mjög fyndinn þegar hann er að tala í símann. Hann tekur hann upp talar við okkur svo leggur hann jafnvel bara á tekur svo tólið upp aftur og kallar mamma, pabbi. Ótrúlega sniðug græja. Hann er búin að rífa niður allar 5 seríurnar sem afi var búin að setja upp hjá þeim og er að reyna að nota dvd spilarann þeirra sem tröppu til að ná hærra og fikta meira hann opnar diskahólfið og reynir svo að stíga á það.
Vonandi að amma lifi þetta af því seinnipartinn bætast Þórhildur og Benni í hópinn og þá er sko orðið fjör. 3 börn sem eru 2, 2, og 3ja ára. Nóg að gera hjá ömmu Álfhildi. Björg getur örugglega hjálpað eitthvað með ormana enda orðin 8 ára.
Ég sendi myndir í framköllun um helgina og voru það ekki nema 900 stykki. Gaman að sortera það í albúm.....

En svona er þetta það er ekki góð hugmynd að kaupa stóra tilboðspakka sem duga í 1 ár. keypti 2 1000 mynda pakka og svo var það að renna út og ég þurfti að framkalla restina.

En já meira síðar... vonandi

Ég er međ EITT háskólapróf.Gunni Run

Þá er ég búinn að landa fyrsta háskólaprófskírteininu. Fékk sent í pósti um daginn vottorð um að ég væri kominn með B.Sc í verkfræði. Þannig að nú verða allir að fara að kalla mig verkfræðingCool.

Við sendum börnin til Íslands í gær þannig að nú sitjum við hérna bara ein hjónaleysin. Afi þeirra kom til okkar á mánudaginn var og svo lögðu þau af stað til Íslands í gærmorgun. Ferðalagið hjá þeim gekk ljómandi og þau voru komin alla leið á Ísafjörð klukkan eitt í nótt. Þannig að nú verða börnin í dekri hjá ömmu sinni fram að jólum þegar að við grípum aftur í taumana. 

Skýrsluskrif eru að ná hámarki hjá okkur núna og við sitjum niðri í háskóla frá átta á morgnanna til sex á kvöldin. Og dagarinr eiga sennilega bara eftir að lengjast.

Annars er lítið og fátt spennandi að frétta hjá okkur. Það snjóaði örlítið um síðustu helgi. En það var þó verulega lítið og er allt löngu horfið aftur.

Ég smelli inn nokkrum myndum. Svo biðjum við bara að heilsa þar til næst.

Dýr bílastćđi í Álaborg!!!Gunni Run

Sæl öllsömul.

Nú er talsvert farið að hausta í Danmörku. Búið að vera næturfrost nokkrar nætur og rignir eitthvað flesta daga. Í dag og í gær er búið að vera frekar hvasst í Álaborginni allagvega svona á danskan mælikvarða. Það fór meira að segja svo langt að ég drattaðist til að taka trampólínið niður áður en að það myndi fjúka. Annars er það helst að frétta að það er búið að skipta um allar hurðir og þá glugga sem átti að skipta um. Smiðurinn kon hérna í gær og setti aðalhurðina í. Hún tekur sig mjög vel út og hefur svipurinn á húsinu gjörbreyst við þetta. Ég set inn eitthvað að myndum af þessum framkvæmdum við tækifæri.
Svo fara börnin að fara til Íslands. En afi og amma á Ísafiriði ætla að leyfa þeim að koma í heimsókn á meðan að pabbi og mamma klára að skrifa skýrslurnar sínar. Við komum svo á eftir þeim þann 20. des og ætlum að eyða jólunum á Ísafirði þetta árið.

Annars gengur ágætlega í skólanum. Við erum búin í öllum kúrsum þessa önnina og nú er bara verið að skrifa. Það er frekar gaman að fylgjast með því hvað grúppurnar okkar taka mismunandi á verkefninu. Hjá Þórunni er kvöldvinna öll kvöld fram undir miðnætti og flestar helgar undirlagðar. Í minni grúppu þykir okkur mikið að vera að vinna til klukkan fjögur um eftimiðdaginn. Hugsanlega eigum við eftir að fá þetta eitthvað í hausinn í desember þegar að nær líður skilum. En þetta er allavega notalegt eins og stendur.

Þórunn fór með Sveinbjörn í eftirlit hjá eyrnalækninum í fyrradag. Það var verið að tékka á því hvort að það væri ekki allt í lagi með drenið. Það reyndist allt eins gott og það gat verið. En þegar að þau koma út í bíl aftur frá lækninum tekur Þórunn eftir því að það er komin stöðumælasekt á bílinn. Hún var frekar pirruð þar sem að hún borgaði í stöðumælinn og lagði kvittun fyrir því í mælaborðið eins og til er ætlast. En þegar að hún hefur farið úr bílnum hefur kvittunin fokið til og lent á hvolfi þannig að ekki var hægt að lesa hana. Og það er víst bannað!!! 550 DKK í sekt takk fyrir. Þannig að hálftíma legging kostaði í allt 558 DKK eða 13.000 ISKMoney mouth. Helvítis gyðingar. Þannig að ég fór í það að semja grenjubréf til bílastæðasjóðs og grenjaði mikið yfir því að við værum fátækir námsmenn og alveg að koma jól og væl væl væl... Vona bara að einhver góðhjörtuð kona lesi bréfið og hendi bara sektinni okkar.

Nóg í bili. Kær kveðja
Gunni, Þórunn, Björg og Sveinbjörn.

Fleskesteg og hákarl!!!Gunni Run

Þá er best að reyna að finna eitthvað spennandi til að segja frá. Ég hef verið að spá í það hvort að ég eigi ekki bara að fara að segja lygasögur hérna þar sem að ég finn aldrei neitt spennandi að skrifa um. Veit ekki hvort að það sé lausnin á þessu. Hugsanlegt er líka að það sé frekar leti minni um að kenna frekar en því að það gerist aldrei neitt að ekkert sé bloggað. En lífið er enn í sama farinu. Skóli, börn, borða og sofa. Það er það helsta sem lífið snýst um. Og svo að fylgjast með því hvort að Ísland sé sokkið eða fljóti enn.
Í dag fengum við þá hugmynd að bjóða dönunum sem eru í grúppu með okkur að smakka hákarl og brennivín. Við í grúppunum setjumst oft niður eftir að við hættum að vinna á föstudögum og fáum okkur einn öl saman, og í dag var sem sagt hákarl í boði líka. Danirnir voru frekar feimnir við hákarlinn. Af átta dönum treystu þrír sér til að smakka. Og... engum fannst hann góður. Það jákvæðasta sem þeir gátu sagt um hann var að lyktin minnti helst á dýrafóður... og svo heyrðist líka. Þau eru að éta einhvern skít frá Íslandi þegar að fólk úr næstu stofum kom til að spyrja hvaða helv. fýla þetta væri. En þair kunnu mun betur við brennivínið. Sögðu að það deyfði lyktarskinið heilmikið.
En í staðinn fyrir að bjóða þeim upp á hákarl ætla þeir að bjóða mér upp á fleskesteg. Það er tilkomið vegna þess að einn daginn þegar við vorum að tala um mat!!! Sagði ég að mér þætti tilhugsinin um að éta fleskesteg vera eitthvað svo... ojjjj... viðbjóðsleg. Þeir urðu þvílíkt hneykslaðir og sögðust ætla að elda fleskesteg fyrir mig. Svo eftir að hafa horft upp á mig hakka í mig hákarl segja þeir... og þér finnst fleskesteg ógeðsleg... Þvílíkt hel, fífl.
Grúppufélögunum finnst líka að það sé eini möguleikinn hjá okkur til að komast út úr námslánafeninu að gerast danskir ríkisborgarar og þéna danskar krónur í framtíðinni. Og þannig geta borgað risavaxin námslán niður. Þannig að fleskestegen er fyrsta skref í því að gera mig að dana!!!
Bestu kveðjur...

KöngulóarskytteríGunni Run

Sæl öll sömul.
Við tórum ennþá hérna í Danmörku þó að fjármálakreppa sé búin að setja talsvert strik í reikninginn okkar. Alltaf heldur maður að málin geti ekki orðið verri. En samt er leiðin alltaf niður á við. Nýjustu vandamál okkar er að búið er að vera lokað fyrir millifærslur frá Íslensku bönkunum, og eins og það hafi ekki verið nóg er Danske Bank búinn að loka hinum enda leiðslunnar og vill ekki taka við millifærslum frá Íslandi!!! Veit ekki alveg hvort að þetta geti endað öðruvísi en illa. Allavega verður erfitt að draga fram lífið hérna fyrir 0 kr á mánuði mjög lengi.

En það þýðir lítið að vera að velta sér upp úr þessum vandamálum. Það er sennilega lítið sem við getum gert til að leysa þau annað en að vona það besta. Að öðru leiti gengur allt ljómandi vel hjá okkur. Núna um helgina og í næstu viku er haustfrí í Danmörku. Við ákváðum að leifa okkur að taka frí á mánudaginn þannig að við fáum þriggja daga helgi núna.

Í gær fórum við fjölskyldan í bíltúr í fyrsta sinn í mjög langan tíma. Við keyrðum upp í Hirtshals og skoðuðum norðursjávarsafnið. Það er fiska safn sem sýnir lífríkið sem er í norðursjónum. Það var ljómandi notalegur dagur og var alveg kominn tími til að gera eitthvað svona saman.

Síðan gerðist það um daginn að ég fór út í bílskúr eitthvað að vesenast. Þá fann ég þá stærstu könguló sem við höfum séð!!! Ég kallaði til hina fjölskyldumeðlimi til að ráðleggja hvernig við gætum ráðið niðurlögum skrímslisins. Þá vildi svo vel til að Þórunn var einmitt með Geira bróðir í símanum. Hann er að sjálfsögðu alvanur að fást við allskonar óargardýr eftir að hafa dregið fram lífið í Gnúpverjahreppnum árum saman. Og að sjálfsögðu hafði hann lausnina. Skjóta kvikindið. Auðvitað. Allir vita að besta lausnin í baráttu við skrímsli og önnur hættuleg dýr er að sækja byssuna og skjóta. Og vona svo að maður hitti nógu vel. Því var loftriffillinn sóttur og hlaðinn. Og eftir að hafa miðað vel....skaut ég köngulóna. Hún lést samstundis. Ég smelli inn myndum að aðförunu ásamt einhverjum fleiri myndu frá síðustu vikum.

Bestu kveðjur úr blankheitunum í Danmörku.

Grár hversdagsleiki.Gunni Run

Jæja þá er best að segja einhverjar fréttir. Skólinn er náttlega kominn á fullt. Það gekk ljómandi vel hjá okkur Þórunni að ganga frá grúppumálunum okkar. Við vorum alveg viss um að við þyrftum að vinna í sömu grúppunni og vorum ekkert rosalega spennt fyrir því. En það leystist með því að tveir strákar tóku sér pásu og tveir aðilar komu nýjir inn á sjöundu önnina. Þórunn og strákur sem var að flytja sig frá Århus til Álaborgar. Þannig að hann var tekinn inn í mína grúppu og Þórunni var kippt inn í aðra grúppu. Síðan hefur bara gengið ágætlega hjá okkur í skólanum. Það er heilmikill munur að vera svona í sitt hvorri grúppunni miðað við að þurfa að vera saman bæði heima og í skólanum allan sólarhringinn. Annars er helst að frétta að krónan er alveg að drepa alla námsmenn hérna. Fólk sér varla fram á draga fram lífið eins og ástandið er. Frá því að við fluttum út er orðið rúmlega tvöfalt dýrara að lifa. Þannig að þetta er ekkert rosalega spennandi eins og er. Við vorum að fara yfir öll fjármál hjá okkur um daginn og skera niður allt sem við getum verið án. Núna kaupum við bara minnsta sjónvarpspakkann sem hægt er að fá og svo framvegis. Það verður víst að reyna allt til að drýgja aurana.

En að öðru leiti gengur allt ljómandi vel hjá okkur. Björgu gengur vel í skólanum og Sveinbjörn er ánægður hjá Lene sinni. Hann er alltaf að verða duglegri og duglegri að tala. Hann talar Íslensku hér heima og Dönsku hjá Lene. Björg heldur áfram að æfa sund og handbolta einu sinni í viku og er farin að læra á trompet líka. Þannig að hún hefur nóg að gera.

Þórunn ákvað um daginn að fara til háls NEF og eyrnalæknis þar sem að hún hefur átt erfitt með að anda í gengum nefið. Hún fór í skoðun og þar sagði læknirinn henni að það væri eihver þrenging í nösunum á henni sem að þyrfti að fjarlægja með "SMÁVÆGILEGRI" aðgerð. Eða svo skildist henni. Hún mætti svo í aðgerðina og bjóst jafnvel við að geta mætt aftur í skólann eftir hádegi sama dag. En svo þegar að kom að aðgerðinni kom það í ljós að það þurfti að fjarlægja/minnka bein sem var í nefinu!!! Og það var gert með hamri og meitli!!!Öskrandi Síðan þurfti að brenna fyrir sárið og sauma saman. Þórunn var, eins og gera má ráð fyrir, ekki alveg klár í skólann strax á eftir. Þannig að hún fór heim til að jafna sig. Fljótlega eftir að hún kom þangað byrjaði svo að blæða mikið úr nefinu á henni. H'un aftur til læknisins. Og þurfti hann að brenna meira fyrir og sauma allt upp á nýtt. Eftri það fór að ganga aðeins betur. Síðan fer hún í eftirlit í gær og þá kemur í ljós að þetta er eitthvað ekki að gróa nógu vel þannig að það þarf sennilega að brenna meira fyrir í næstu viku. Þannig að húsmóðirin er í heldur betur að fá það óþvegið þessa dagana. Eins var ég að átta mig á því að ef að Þórunn hafi haft bein í nefinu áður, þá er allavega búið að fjarlægja það!!! Kannski kem ég til með að hafa meir áhrif hérna á heimilinu eftir þetta.Svalur

En ég læt þetta duga í bili. Biðjum öll að heilsa. Og enn einu sinni lofa ég að vera duglegri að skrifa!!!

Auglýsing

Prófíll

  • Nafn: Ţórunn Ágústa
  • Stađur: Aalborg
  • Atvinna: Erum í skóla. Erum bćđi ađ lćra verkfrćđi.
  • Hjúskaparstađa: Já viđ erum í sambúđ
  • Um mig: Viđ búum í Álaborg í Danmörku.
  • Annađ: Viđ höfum ţađ rosalega gott hér og höfum keypt okkur hús hér. Eigum 2 börn, Björg er 7 ára skvís og er í skóla. Sveinbjörn er 1 og hálfs árs og er hjá dagmömmu.

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Klukkan